Það er gaman að spila á píanó

Fyrir krakka

1. hefti

Þessi bók er hugsuð fyrir krakka á aldrinum 8 - 12 ára sem eru að hefja sitt píanónám. Útskýringar í bókinni reyni ég að hafa stuttar og hnitmiðaðar ásamt myndskreytingum sem höfða til barna.

Markmiðið er að nemendur njóti þess að spila og hafi gaman af náminu án þess að það séu of miklar kvaðir um skjótan árangur.

Vona að sem flestir njóti og hafi gaman af.

Boggie Woogie

Hringurinn Minn

Meistari Jabok




Það er gaman að spila á píanó

Fyrir krakka

2. hefti

Þessi bók er hugsuð fyrir krakka á aldrinum 8 - 12 ára sem eru að hefja sitt píanónám. Uppsetningin er nánast eins og í fyrra heftinu, nema að hér eru fleiri lög sem nemendur þekkja. Farið er hægt og rólega í hljómana og spuni er aðeins tekinn fyrir ásamt þessu hefðbundna eins og nótnalestur, fingrasetningar og þess háttar.

Markmiðið er að nemendur njóti þess að spila og hafi gaman af náminu án þess að það séu of miklar kvaðir um skjótan árangur.

Vona að sem flestir njóti og hafi gaman af.

Afmælislagið

Tetris

Yankee Doodle




Hafa samband

Ekki hika við að hafa samband ef þú hefur einhverjar spurningar eða ábendingar.